Pækilkerfi frá DNG eru hönnuð til að framleiða pækil fyrir fisk- eða rækjuvinnslu. Hægt er að tengja inn á kerfið tanka fyrir önnur íblöndunarefni.
Kerfið samanstendur af saltkari, saltbræðslukerfi, pækiltanki og auka forðatönkum ef þess þar
Pækilkerfið er tölvustýrt og býður upp á utanumhald á mismunandi blöndunar uppskriftum. Kerfið blandar pækil eftir uppskrift og dælir honum sjálfkrafa á afhendingarstað.
UPPSETNING:
Okkar teymi mun annast uppsetningu á tækinu og gefa leiðbeiningar um notkun til að tryggja bestu mögulega virkni.
AUÐVELD ÞRIF:
Þetta tæki er hannað með það að leiðarljósi að þrif séu eins auðveld og þægileg eins og mögulegt er.
BESTU GÆÐI:
Allt efni og íhlutir er gerðir úr bestu mögulegum gæðum. Allar suðusamsetningar og stálhlutir eru sléttir og viðloðunarfríir.